HÆ <3
Ég heiti Gestheiður Guðrún Sveinsdóttir
Ég er tveggja barna móðir, unnusta og þjálfari með mikla ástríðu fyrir þjálfun og heilsu kvenna. Ég er menntaður íþrótta- og heilsufræðingur, að auki er ég meðgöngu og mömmuþjálfari, næringarþjálfari og stunda nú meistaranám í Verkefnastjórnun.
“Þú hefur kennt mér svo fáránlega vel á mataræðið þó það sé alls ekki fullkomið en allt á réttri leið. Æfingarnar þínar hjálpa mikið með hlaupunum! þvílíkur styrkur í lærunum eftir Glutes æfingarnar, algjör snilld Takk <3 “
Frá árinu 2014 hef ég stundað mikla hreyfingu. Var lengi í hóptímaþjálfun, Crossfit, Ólympískum lyftingum og fleira. Ég hef brennandi áhuga á hreyfingu og þjálfun kvenna – en sá áhugi kviknaði sérstaklega eftir að ég átti börn sjálf. Ég byggði upp On Point fjarþjálfunina mína eftir að ég átti börnin mín og fannst ég þurfa að gera breytingar í hreyfingu og hugafari almennt. Það sem hefur breyst hjá mér á þessum árum er klárlega hugsunarhátturinn minn gagnvart hreyfingu. Ég var háð þessari tilfinningu að “ganga frá mér” á hverri einustu æfingu, á hverjum einasta degi.
Í dag hef ég lært að það er ekki alveg það sem ég þarf, bæði fyrir andlega og líkamlega þáttinn. Hreyfing á að vera eitthvað sem lætur mér líða betur í líkamanum, bætir andlega líðan, eykur sjálfstraust og gefur meiri orku í dagleg verkefni. Líkaminn þarf fjölbreytni bæði í hreyfingum og einnig í ákefð.
Í On Point legg ég upp með því að aðstoða konur að líða betur í eigin líkama, læra að setja sig í 1.sætið, finna hreyfingu sem þær elska, bæta samband við mat og upplifa jafnari orku. Góð næring fyrir mér setur tóninn fyrir allt…
-ég er líklegri til að fara á æfingu eða stunda einhverskonar hreyfingu
-ég er líklegri að halda áfram að næra mig rétt
-ég hef meiri orku í að sinna daglegum verkefnum
-ég er í betra jafnvægi, andlega og líkamlega